Ábendingar um ýmis önnur námskeið sem berast Ráðgjafar- og greiningarstöð

Athugið að listinn er ekki tæmandi. Ráðgjafar- og greiningarstöð ber ekki ábyrgð á þeim námskeiðum sem hér eru auglýst.

Ráðgjafar- og greiningarstöð glitraði með einstökum börnum ✨

Starfsfólk mætti í glimmeri, pallíettum og litríkum klæðnaði sem minnir okkur á að við erum öll ólík og það er styrkur. Með því að taka þátt í þessari skemmtilegu og sýnilegu vitundarvakningu viljum við sýna stuðning og samstöðu með þeim einstaklingum og fjölskyldum sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni. 

Heimsókn mennta- og barnamálaráðherra til RGR

Þriðjudaginn 10. febrúar sl. heimsótti Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Ráðgjafar- og greiningarstöð til að kynna sér starfsemi stofnunarinnar og ræða starf hennar.

Upptökur og glærur frá vorráðstefnu 2025 nú aðgengilegar á vef RGR

Upptökur og glærur frá vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, sem haldin var 8. og 9. maí 2025 á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi, eru nú aðgengilegar á vef RGR.

Atferlisfræðingar RGR á tveimur alþjóðlegum ráðstefnum á haustmánuðum 2025

Atferlisfræðingar Ráðgjafar- og greiningarstöðvar tóku þátt í tveimur alþjóðlegum ráðstefnum á haustmánuðum 2025. Þátttakan var liður í faglegri þróun og miðlun þekkingar á sviði atferlisgreiningar.

Vorráðstefna 2026: Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna

Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi dagana 7. og 8. maí 2026. Í ár verður ráðstefnan haldin í samvinnu við Gló Æfingastöð. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.

Jólakveðja frá Ráðgjafar- og greiningarstöð

Starfsfólk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar óskar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum kærlega fyrir gott samstarf og ánægjuleg samskipti á árinu.

Námskeiðsdagskráin á vorönn er komin á vefinn okkar!

Við erum glöð að kynna nýja og spennandi námskeiðsdagskrá fyrir fagfólk og aðstandendur barna með öðruvísi taugaþroska. Í dagskránni má finna almenna fræðslu, hagnýtar upplýsingar og sértæk íhlutunarnámskeið sem miða öll að stuðningi, valdeflingu og fagþróun.

Sigurbjörg Fjölnisdóttir skipuð forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Sigurbjörgu Fjölnisdóttur í embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar. Hún tók við starfinu 1. desember 2025 og er skipuð til fimm ára.

Hefja samstarf um sérnám í barna- og unglingageðlækningum

Landspítali hefur undirritað samstarfssamning við Ráðgjafar- og greiningarstöð (RGR) og Geðheilsumiðstöð barna (GMB) um sérnám í barna- og unglingageðlækningum. Samningurinn var undirritaður 5. nóvember og markar mikilvægt skref í því að fjölga sérfræðilæknum á þessu sviði og efla þjónustu við börn og ungmenni um allt land.