Ráðgjafar- og greiningarstöð flytur í Lágmúla

Ráðgjafar- og greiningarstöð flytur starfsemi sína tímabundið að Lágmúla 9, 5. hæð, 108 Reykjavík. Starfsemi í nýja húsnæðinu hefst í næstu viku.

Við hlökkum til að taka á móti börnum, fjölskyldum og öðrum gestum á nýjum stað.

Hvar er inngangurinn?

Þegar staðið er framan við húsið er inngangur að Ráðgjafar- og greiningarstöð á gafli hússins hægra megin. Stofnunin er á 5. hæð.

Sjá staðsetningu á Google Maps.