Ráðgjafar- og greiningarstöð nær öðrum áfanga í grænum skrefum
17.03.2026
Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur náð öðrum áfanga í verkefninu Græn skref, sem er umhverfisstjórnunarkerfi fyrir ríkisstofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins. Markmið verkefnisins er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfsemi og efla umhverfisvitund á vinnustöðum.

