Hærri tíðni tilvísana barna með erlendan bakgrunn á Ráðgjafar- og greiningarstöð samanborið við börn af íslenskum uppruna

Börnum með erlendan bakgrunn er oftar vísað á Ráðgjafar- og greiningarstöð (RGR) en börnum af íslenskum uppruna, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í vísindaritinu European Child & Adolescent Psychiatry. Rannsóknin ber heitið Rate differences in referrals and diagnostic outcomes of neurodevelopmental disorders between children with native and migrant backgrounds: a retrospective cohort study og var styrkt af Þróunarsjóði innflytjendamála. Höfundar hennar eru Emilía Guðmundsdóttir, Helen M. Frigge, Evald Sæmundsen, Kolbrún B. Jensínudóttir og Urður Njarðvík.

Athygli er vakin á áhugaverðri ráðstefnu sem haldin verður í Glostrup í Danmörku dagana 25. og 26. ágúst 2025.

Þetta er tíunda samnorræna ráðstefnan um fæðuinntökuerfiðleika barna – Nordic Pediatric Feeding Disorder Conference. Að þessu sinni beinist ráðstefnan að málefnum er varða næringu um magaslöngu: fæðugjafir í gegnum slöngu, aðdraganda slíkra inngripa, lífið með magaslöngu, auk þess sem fjallað verður um leiðir til að örva fæðuinntöku um munn og draga úr þörf fyrir næringu í gegnum slöngu (tube weaning). Gert er ráð fyrir kynningu á tilfellum frá hverju landi og munu Heiða D. Sigurjónsdóttir talmeinafræðingur og Erna Petersen næringarfræðingur á Landspítala, m.a. kynna tilfelli frá Íslandi.