Sumarlokun Ráðgjafar- og greiningarstöðvar frá 6. júlí til 4. ágúst

Ráðgjafar- og greiningarstöð er lokuð frá 6.júlí og opnum við aftur 4.ágúst kl. 10:00.

Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á kynningu og þjálfun vegna námsefnisins Relationships Decoded for Adolescents

Einstakt tækifæri – höfundar námsefnisins Relationships Decoded koma til Íslands. Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á kynningu og þjálfun vegna námsefnisins Relationships Decoded for Adolescents, eða Sambönd og samskipti fyrir ungmenni. Um er að ræða glænýtt gagnreynt kennsluefni um sambönd og samskipti, ætlað ungmennum með öðruvísi taugaþroska.

Nýjar leiðbeiningar um uppfært verklag við greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur gefið út Leiðbeiningar um greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11 og skráningu með ICD-10 kóðum. Leiðbeiningarnar eru hluti af uppfærðu og samræmdu verklagi við greiningu einhverfu hér á landi. Á síðustu tveimur áratugum hafa orðið mikilvægar breytingar á alþjóðlegri skilgreiningu einhverfu. Í nýrri flokkunarkerfum, meðal annars DSM-5 og ICD-11, er horfið frá aðgreindum undirflokkum einhverfu. Í staðinn er litið á einhverfu sem eina samfellda greiningu, einhverfurófsröskun (e. autism spectrum disorder).