Handbók um nýtingu niðurstaðna SIS-A komin út á íslensku

Nú er aðgengileg á íslensku handbók um hvernig nýta má niðurstöður SIS-A við einstaklingsmiðaða áætlanagerð og skipulag stuðnings. Handbókin er ætluð teymum og fagfólki sem koma að gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana samkvæmt 12. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í henni er fjallað um hvernig niðurstöður SIS-A geta nýst við að greina stuðningsþarfir, setja einstaklingsmiðuð markmið og skipuleggja viðeigandi stuðning.