Handbók um nýtingu niðurstaðna SIS-A komin út á íslensku

Nú er aðgengileg á íslensku handbók um hvernig nýta má niðurstöður SIS-A við einstaklingsmiðaða áætlanagerð og skipulag stuðnings.

Handbókin er ætluð teymum og fagfólki sem koma að gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana samkvæmt 12. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í henni er fjallað um hvernig niðurstöður SIS-A geta nýst við að greina stuðningsþarfir, setja einstaklingsmiðuð markmið og skipuleggja viðeigandi stuðning.

Handbókin er þýðing á Person-Centered Planning With the Supports Intensity Scale – Adult Version: Guide for Planning Teams. Útgefandi veitti leyfi fyrir þýðingunni og að hún yrði afhent án endurgjalds.

Íslenska útgáfan nær til meginhluta handbókarinnar. Kaflarnir Introduction (Inngangur) og Getting Started (Að hefjast handa) voru ekki þýddir.

Hægt er að fá handbókina senda án endurgjalds með því að hafa samband við Guðnýju Stefánsdóttur í tölvupósti á gudny.stefansdottir@rgr.is.