Nýjar leiðbeiningar um uppfært verklag við greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur gefið út Leiðbeiningar um greiningu einhverfu samkvæmt ICD-11 og skráningu með ICD-10 kóðum. Leiðbeiningarnar eru hluti af uppfærðu og samræmdu verklagi við greiningu einhverfu hér á landi.

Á síðustu tveimur áratugum hafa orðið mikilvægar breytingar á alþjóðlegri skilgreiningu einhverfu. Í nýrri flokkunarkerfum, meðal annars DSM-5 og ICD-11, er horfið frá aðgreindum undirflokkum einhverfu. Í staðinn er litið á einhverfu sem eina samfellda greiningu, einhverfurófsröskun (e. autism spectrum disorder).

ICD-11 hefur ekki enn verið formlega innleitt hér á landi og því er ICD-10 enn í gildi. Þar sem ICD-10 endurspeglar ekki að fullu nútímaþekkingu á einhverfu hefur skapast þörf fyrir uppfært og samræmt verklag við greiningu einhverfu.

Fulltrúar stofnana sem sinna formlegri greiningu einhverfu hérlendis skipuðu vinnuhóp sem fjallaði um hvernig samræma megi verklag á meðan beðið er eftir innleiðingu ICD-11. Emilía Guðmundsdóttir, sálfræðingur, leiddi vinnuhópinn og í honum sátu Haukur Örvar Pálmason, sérfræðingur í klínískri taugasálfræði, Helga Auðardóttir, sálfræðingur, Ingólfur Einarsson, barnalæknir, Sigurrós Jóhannsdóttir, sálfræðingur og Solveig Erna Jónsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði. Vinnan fór fram í samstarfi við fleiri fagaðila og heilbrigðisyfirvöld. Auk þess var haft samráð við fulltrúa hagsmunasamtaka og ýmsa aðra hagaðila með kynningum og samtali um fyrirhugaðar breytingar. Ráðgjafar- og greiningarstöð þakkar öllum sem komu að vinnunni fyrir þeirra framlag.

Niðurstaða vinnuhópsins er að klínísk greining einhverfu byggi framvegis á greiningarskilmerkjum ICD-11. Notast verður við greiningarhugtakið einhverfurófsröskun, sem nær yfir allt rófið. Með viðbótum (e. specifiers) er síðan tilgreint hvort einnig sé til staðar þroskahömlun, verulega skert geta til virkrar málnotkunar í hagnýtum tilgangi og/eða saga um afturför.

Greiningin verður skráð með nýjum ICD-10 bráðabirgðakóðum, U52.x, sem nálgast má á vefnum SKAFL.is. Samhliða verða valdir eldri ICD-10 kóðar notaðir um sinn (tvöföld skráning) til að tryggja samfellu í skráningu og gagnasöfnun.

Ekki er gert ráð fyrir að endurskoða þurfi eldri einhverfugreiningar samkvæmt ICD-10 eingöngu vegna þessa breytta verklags. Almennt er gengið út frá því að fyrirliggjandi greiningar innan F84.x flokks ICD-10 falli undir einhverfurófsröskun samkvæmt uppfærðu verklagi, nema tilefni sé til endurmats af klínískum ástæðum.

Með uppfærðu verklagi er stigið mikilvægt skref í átt að því að greiningar, rannsóknir og þjónusta við einhverft fólk byggi á nýjustu þekkingu og séu í samræmi við alþjóðleg viðmið.

Hér má nálgast leiðbeiningarnar

Frekari upplýsingar: 
Emilía Guðmundsdóttir, verkefnastjóri rannsókna á Ráðgjafar- og greiningarstöð
emilia.gudmundsdottir@rgr.is