Athygli er vakin á áhugaverðri ráðstefnu sem haldin verður í Glostrup í Danmörku dagana 25. og 26. ágúst 2025.

Athygli er vakin á áhugaverðri ráðstefnu sem haldin verður í Glostrup í Danmörku dagana 25. og 26. ágúst 2025.

Þetta er tíunda samnorræna ráðstefnan um fæðuinntökuerfiðleika barna – Nordic Pediatric Feeding Disorder Conference. Að þessu sinni beinist ráðstefnan að málefnum er varða næringu um magaslöngu: fæðugjafir í gegnum slöngu, aðdraganda slíkra inngripa, lífið með magaslöngu, auk þess sem fjallað verður um leiðir til að örva fæðuinntöku um munn og draga úr þörf fyrir næringu í gegnum slöngu (tube weaning). Gert er ráð fyrir kynningu á tilfellum frá hverju landi og munu Heiða D. Sigurjónsdóttir talmeinafræðingur og Erna Petersen næringarfræðingur á Landspítala, m.a. kynna tilfelli frá Íslandi.

Ráðstefnan er sérstaklega gagnleg fyrir þá sem starfa með börnum sem glíma við fæðuinntökuerfiðleika og er því viðeigandi fyrir fjölbreyttan hóp fagaðila.

Skipulag ráðstefnunnar er í höndum undirbúningshóps frá öllum Norðurlöndunum, en Danir leiða verkefnið að þessu sinni. Frá Íslandi taka fulltrúar Ráðgjafar- og greiningarstöðvar og Barnaspítala Hringsins þátt í undirbúningnum.

Stefnt er að því að næsta ráðstefna verði haldin á Íslandi árið 2027.

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á heimasíðu ráðstefnunnar: https://nordicfeeding.net

Snemmskráning stendur til 20. júní 2025 og veitir lægra þátttökugjald.