Ársskýrsla Ráðgjafar- og greiningarstöðvar 2025 komin út

Ársskýrsla Ráðgjafar- og greiningarstöðvar fyrir árið 2025 er nú aðgengileg á vefnum. Í henni er fjallað um þjónustu við börn og fjölskyldur, fræðslu, rannsóknir og fjölbreytt samstarf á árinu.

Á árinu bárust stöðinni 380 tilvísanir, framkvæmdar voru 347 þverfaglegar athuganir og 524 börn nutu ráðgjafar, íhlutunar eða eftirfylgdar. Þá voru skráðar 2.247 þátttökur í fræðslustarfi stofnunarinnar.

Skýrslan veitir jafnframt innsýn í breytingar á skipulagi, þróun þjónustu og ný verkefni.

Lesa ársskýrslu 2025