Ráðgjafar- og greiningarstöð hélt kynningu og þjálfun um námsefnið Sambönd og samskipti fyrir ungmenni (Relationships Decoded for Adolescents) dagana 5. og 6. október. Fjórir fyrirlesarar komu frá Bandaríkjunum til að kynna efnið og þjálfa fagfólk í notkun þess. Um 70 þátttakendur sóttu kynninguna fyrri daginn og um 50 tóku þátt í þjálfuninni þann síðari.
Námsefnið er ætlað ungmennum með ódæmigerðan taugaþroska, meðal annars einhverfu og/eða þroskahömlun. Það fjallar um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni. Markmiðið er að styðja ungmenni við að skilja félagslegar aðstæður, þekkja heilbrigð og óheilbrigð samskipti og öðlast aukið öryggi í samskiptum.
Kynning fyrir aðstandendur og fagfólk
Fyrri daginn var kynning fyrir foreldra, aðstandendur, fagfólk og aðra áhugasama. Þar var fjallað um mikilvægi sambands- og samskiptafræðslu fyrir ungmenni, uppbyggingu námsefnisins og fræðilegan grunn þess. Einnig voru sýnd dæmi úr efninu og kynntar kennsluaðferðir sem nýtast í fræðslu og stuðningi við ungmenni.
Hagnýt þjálfun í notkun námsefnisins
Seinni dagurinn var ætlaður fagfólki sem hyggst nýta efnið í kennslu, fræðslu eða þjálfun með ungmennum. Farið var yfir kennsluáætlanir, sjónrænan stuðning og hagnýt verkefni, með áherslu á hvernig hægt er að laga kennsluna að þörfum ólíkra einstaklinga og hópa.
Íslensk þýðing í vinnslu
Unnið er að íslenskri þýðingu á námsefninu fyrir ungmenni á aldrinum 12–20 ára og er áætlað að hún verði tilbúin í kringum áramót. Þangað til er hægt að kynna sér efnið á vefsíðu Relationships Decoded.
Námsefnið Sambönd og samskipti fyrir fullorðna frá 20 ára aldri hefur þegar verið þýtt á íslensku og er aðgengilegt á vefnum Stopp ofbeldi. Það skiptist í inngangs- og framhaldsnámskeið og inniheldur kennsluleiðbeiningar og námsefni fyrir nemendur.
Ráðgjafar- og greiningarstöð þakkar fyrirlesurum og þátttakendum fyrir dagana tvo.