29.01.2019
Dagana 4. og 5. febrúar verður haldið námskeið um atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri. Námskeiðið er frá 09:00 - 16:00 báða dagana, alls 16 kennslustundir.
21.01.2019
Hin árlega Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 9. og 10. maí 2019. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Framtíðin er núna! Snemmtæk íhlutun barna með þroskafrávik.
Takið dagana frá, nánari upplýsingar koma mjög fljótlega.
18.01.2019
Við viljum bæta fleiri sérfræðingum í hópinn! Auglýstar hafa verið þrjár lausar stöður á stofnuninni.
28.02.2019
Alþjóðlegur dagur um sjaldgæfa sjúkdóma er 28. febrúar. Einstök börn og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins standa fyrir málþingi í tilefni dagsins á Grand Hótel Reykjavík kl. 13:00 - 16:00. Allir velkomnir, þátttaka ókeypis.
15.01.2019
Dagana 12. og 13. febrúar verður haldið námskeið í PECS (Picture Exchange Communication System) sem er myndrænt boðskiptakerfi og óhefðbundin tjáskiptaleið. PECS er þróað af Frost og Bondy (1994) fyrir börn með einhverfu þar sem áherslan er á að þjálfa frumkvæði í samskiptum.
15.01.2019
Vakin er athygli á rannsókn á lífsgæðum og þátttöku fatlaðra barna sem unnin er í samstarfi Háskóla Íslands og Greiningar- og ráðgjafarstöðvar auk fleiri aðila. Markmiðið er meðal annars að fá fram sjónarmið barna og unglinga sem búa við skerðingar af einhverju tagi en reynslan sýnir að það er sjaldan leitað eftir viðhorfum þeirra í rannsóknum.
25.03.2019
-
27.03.2019
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á námskeiðið Skipulögð kennsla sem haldið verður 25. - 27. mars næstkomandi.
21.12.2018
Árleg ráðstefna Barna- og unglingageðdeildar LSH verður haldin þann 11. janúar 2019 á Grand Hótel Reykjavík. Að þessu sinni verður sjónum beint að gagnreyndum aðferðum við meðferð geðræns vanda hjá börnum og unglingum.
19.12.2018
Jólakveðja frá starfsfólki Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
12.12.2018
Námskeiðsdagskráin fyrir vorönn 2019 er orðin þéttbókuð! Nú er búið að opna fyrir skráningu á námskeiðið Ungmenni með einhverfu og önnur þroskafrávik sem haldið verður 4. og 5. mars.