Fréttir

Skipulagsbreytingar á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að breytingum á starfsháttum og skipulagi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar. Nýtt skipurit gekk í gildi 1. janúar s.l., en unnið verður að innleiðingu þess á næstu vikum og mánuðum.

Nýjar tilvísanir árið 2012

Alls bárust 295 tilvísanir á Greiningar- og ráðgjafarstöð árið 2012. Hér til hliðar má sjá afdrif þeirra í byrjun janúar 2013.

Ný námskeið að fara af stað "Fótbolti fyrir alla" og "PECS boðskiptakerfið"

Tilkynningar um námskeiðin "Fótbolti fyrir alla" og "PECS boðskiptakerfið", sjá nánar hér undir önnur námskeið!

Jólakveðja

Starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins óskar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða. Við verðum í jólafríi til 2. janúar.

Auglýst eftir kynningum á Vorráðstefnu 2013

Auglýst eftir kynningum á vorráðstefnu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins sjá nánar hér!

Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, 16. og 17. maí 2013

XXVIII. vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin 16. og 17. maí 2013 á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Ýmsar ásjónur einhverfunnar“.

Ábendingar um ýmis önnur námskeið sem berast Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Listinn er ekki tæmandi og ber stofnunin ekki ábyrgð á gæðum námskeiða.

Tilvísanir á Greiningar- og ráðgjafarstöð árið 2010

Komnar eru á vefinn nýjar upplýsingar um tilvísanir á árinu 2010.