Ráðgjafar- og greiningarstöð glitraði með einstökum börnum ✨

Starfsfólk mætti í glimmeri, pallíettum og litríkum klæðnaði sem minnir okkur á að við erum öll ólík og það er styrkur. Með því að taka þátt í þessari skemmtilegu og sýnilegu vitundarvakningu viljum við sýna stuðning og samstöðu með þeim einstaklingum og fjölskyldum sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni. 

Heimsókn mennta- og barnamálaráðherra til RGR

Þriðjudaginn 10. febrúar sl. heimsótti Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Ráðgjafar- og greiningarstöð til að kynna sér starfsemi stofnunarinnar og ræða starf hennar.

Upptökur og glærur frá vorráðstefnu 2025 nú aðgengilegar á vef RGR

Upptökur og glærur frá vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, sem haldin var 8. og 9. maí 2025 á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi, eru nú aðgengilegar á vef RGR.

Atferlisfræðingar RGR á tveimur alþjóðlegum ráðstefnum á haustmánuðum 2025

Atferlisfræðingar Ráðgjafar- og greiningarstöðvar tóku þátt í tveimur alþjóðlegum ráðstefnum á haustmánuðum 2025. Þátttakan var liður í faglegri þróun og miðlun þekkingar á sviði atferlisgreiningar.