Í gær var haldið fyrsta námskeið Ráðgjafar- og greiningarstöðvar á pólsku um einhverfu, í samstarfi við Katarzynu Kubis, verkefnastjóra hjá Þroskahjálp.
Námskeiðið var ætlað pólskumælandi aðstandendum og fagfólki sem á eða sinnir umönnun, íhlutun og kennslu barna á einhverfurófi. Góður andi ríkti á námskeiðinu og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður um efnið.
Á námskeiðinu var fjallað um einhverfurófið, helstu einkenni einhverfu og birtingarmyndir þeirra, greiningu, áhrif á fjölskylduna og mikilvægi samstarfs foreldra og fagfólks. Með námskeiðinu var þátttakendum gefið tækifæri til að nálgast fræðslu og umræðu um efnið á eigin móðurmáli, sem getur skipt miklu máli fyrir skilning og þátttöku.
Námskeiðið markar ákveðin tímamót í fræðslustarfi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, þar sem þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á námskeið á pólsku. Það endurspeglar mikilvæga þróun í átt að auknu aðgengi að fræðslu og betri þjónustu við fjölbreyttan hóp.
Mikilvægt er að fræðsla um einhverfu og þarfir barna á einhverfurófi sé aðgengileg bæði foreldrum og fagfólki, enda er sameiginleg þekking og skilningur lykill að góðu samstarfi og markvissum stuðningi í daglegu lífi. Með því að bjóða upp á fræðslu á pólsku eru tekin mikilvæg skref til að mæta betur þörfum pólskumælandi fjölskyldna og þeirra sem starfa með börnum.
Kennarar námskeiðsins: Katarzyna Kubis, Særún Sigurjónsdóttir og Herdís Hersteinsdóttir