Heimsókn mennta- og barnamálaráðherra til RGR

Þriðjudaginn 10. febrúar sl. heimsótti Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Ráðgjafar- og greiningarstöð til að kynna sér starfsemi stofnunarinnar og ræða starf hennar.

Með henni í för voru Ásdís Halla Bragadóttir ráðuneytisstjóri, Ágúst Ólafur Ágústsson og Sigurjón Arnórsson, aðstoðarmenn ráðherra, Ásgeir Runólfsson skrifstofustjóri fjármála og innri þjónustu og Þór Hauksson Reykdal sérfræðingur á skrifstofu barnamála.

Húsakynnin voru skoðuð og fóru fram líflegar og gagnlegar umræður um málefni þeirra barna og fjölskyldna sem Ráðgjafar- og greiningarstöð þjónustar.

Við þökkum kærlega fyrir heimsóknina og hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við ráðuneytið.