Stafrænt pósthólf tekið í notkun hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur innleitt stafræna pósthólfið á island.is og miðlar nú gögnum frá stofnuninni með þeim hætti til forráðamanna.

Stafrænt pósthólf er lokað svæði á Ísland.is þar sem einstaklingar geta nálgast gögnin sín frá hinu opinbera á einum stað.

Ráðgjafar- og greiningarstöð birtir eftirfarandi gögn til einstaklinga í stafrænu pósthólfi:

  • Samþykktar tilvísanir og frávísanir
  • Niðurstöður athugana
  • Dagskrár
  • Staðfestingu á komu

Á „Mínum síðum“ á Ísland.is er hægt að skrá netfang og fá hnipp (tilkynningu) þegar bréf er birt í pósthólfinu. Sjá nánar hnipp stillingar á Mínum síðum á Ísland.is

Bréf telst hafa verið birt um leið og það verður aðgengilegt í Stafræna pósthólfi viðtakanda. Því er mikilvægt að fylgjast reglulega með pósthólfinu eða virkja tilkynningar.

Ítarlegri upplýsingar og leiðbeiningar um notkun á Stafræna pósthófinu eru á vef Island.is.