19.08.2015
Fræðslumyndin "Ráðgátan um einhverfu" var sýnd í sjónvarpinu á mánudagskvöld.
18.08.2015
Við kynnum nýtt og spennandi námskeið til sögunnar á haustönn 2015. Námskeiðið nefnist "Kynheilbrigði: Hagnýtar kennsluaðferðir fyrir fagfólk sem veitir þjónustu til barna og unglinga með þroskafrávik".
05.08.2015
Nú í haust er að fara af stað námskeið að erlendri fyrirmynd sem er aðlagað fyrir börn á einhverfurófinu. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 11-14 ára sem hafa sögu um hamlandi einkenni kvíða.
23.06.2015
Nýlega birtist í vefútgáfu tímaritsins „autism“ greinin „Use of early intervention for young children with autism spectrum disorder across Europe“. Einn af meðhöfundum greinarinnar er Sigríður Lóa Jónsdóttir sálfræðingur á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
08.06.2015
Í dag 8. júní voru veittir styrkir úr Styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson. Styrktarsjóðurinn var stofnaður 8. júní 1995, en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Í dag eru 25 ár frá fæðingardegi hans en hann lést 20. janúar 1995.
22.05.2015
Samstarfsverkefnið heitir „Aðlagað samfélag – Þátttaka allra barna“ og felst í að þróa aðferðir til að styðja skóla við að taka á móti börnum með einhverfu í Rúmeníu. Verkefnið er styrkt af EFTA og rúmenskum yfirvöldum og nemur rúmlega 22 milljónum íslenskra króna og varir í heilt ár.
13.05.2015
30. vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins var haldin dagana 7. og 8. maí s.l. Ráðstefnan hefur verið árviss atburður frá því að stofnunin tók til starfa árið 1986.
04.05.2015
Skráningu á vorráðstefnu 7. og 8. maí er lokið
28.04.2015
Þann 24. apríl veittu Einhverfusamtökin viðurkenningar fyrir vel unnin störf í þágu einhverfra.
Viðurkenningarnar voru afhentar í Smáralind um leið og Brynjar Karl Birgisson afhjúpaði eftlíkingu af Titanic skipinu sem hann byggði úr u.þ.b.56.000 Lego-kubbum. Starfsmenn Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins voru á meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu fyrir bókina "Litróf einhverfunnar".
26.04.2015
Nú eru vel á annað hundrað þátttakendur skráðir á vorráðstefnuna okkar "Fötluð börn verða fullorðin - Hvað bíður þeirra?