Staðsetning: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Dalshrauni 1b.
Dagsetning og tími: 6., 7. og 8. október 2025, klukkan 9:00-16:00. Samtals 17 klukkustundir. ATH! Miðvikudaginn 8. okt. eru þátttakendur annað hvort í vinnuhópi 9:00 - 12:00 eða 13:00 - 16:00
Verð: Fagaðili: kr. 71.400.- Aðstandandi: kr. 28.600.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir leikskólabörn með ódæmigerðan taugaþroska.
Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 13.
Lýsing
Á námskeiðinu eru kenndar leiðir til að hafa jákvæð áhrif á hegðun og nám leikskólabarna sem eru í snemmtækri íhlutun. Notast er við helstu aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, myndböndum, umræðum og verkefnum.
Markmið
Að þátttakendur:
- Læri hagnýtar leiðir til að takast á við algengar áskoranir í vinnu með börnum með frávik í þroska svo sem krefjandi hegðun, tjáskipti, svefnvanda, fæðuvanda og hreinlætisþjálfun.
- Þekki náttúrulega kennslu og geti skapað námstækifæri í daglegu starfi.
- Þekki aðgreindar kennsluæfingar/beina kennslu, ásamt skráningum.
- Geti skipulagt og haldið utan um heildstæða atferlisíhlutun..
Umsjón, skipulagning og kennsla:
Anna Marín Skúladóttir, klínískur atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir, klínískur atferlisfræðingur, Lilja Árnadóttir, klínískur atferlisfræðingur, Margrét Unnur Jóhannesdóttir, klínískur atferlisfræðingur og Rakel Rós A. Snæbjörnsdóttir, klínískur atferlisfræðingur.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráningu á námskeiðið Snemmtæk atferlisíhlutun lýkur 28. september 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.