Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (áður Greiningar- og ráðgjafarstöð) er árlegur viðburður. Ráðstefnan hefur verið haldin allt frá því að stofnunin var stofnuð eða frá árinu 1986. Á ráðstefnunni eru málefni barna með þroskafrávik í brennidepli.
Hér að neðan er hægt að nálgast dagskrá hverrar ráðstefnu. Hægt er að sjá glærur og upptökur fimm ráðstefnur aftur í tímann.
2024 - Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski - Mætum ólíkum þörfum frá bernsku til fullorðinsára
2023 - Fagmennska og framsækni í þjónustu við börn með fatlanir
2022 - Börn með fatlanir - Virkni og velferð
2021 - Börn með fatlanir - Viðhorf og valdefling.
2020 - Mennt er máttur. Fjölbreytt þjónusta fyrir nemendur með sérþarfir á öllum skólastigum.
2019 - Framtíðin er núna! Snemmtæk íhlutun fyrir börn með þroskafrávik.
2018 - Mátturinn í margbreytileikanum! Einhverfa og skyldar raskanir - þekking og leiðir í þjónustu við börn og ungmenni.
2017 - Fötluð börn og ungmenni - Heildræn þjónusta: Árangur og áskoranir.
2016 - Litróf fatlana - Sjaldan er ein báran stök.
2015 - Fötluð börn verða fullorðin - Hvað bíður þeirra?
2014 - Fjölskyldumiðuð þjónusta. Ávinningur og áskoranir.
2013 - Ýmsar ásjónur einhverfunnar.
2012 - Íhlutun í æsku. Ábati til framtíðar.
2011 - Siðfræði og samstarf.