Einhverfurófið – grunnnámskeið (0123)

Einhverfurófið - grunnnámskeið  

Staðsetning:  Menningarmiðstöðin í Gerðubergi (sjá kort hér)

Dagsetning og tími: 9. janúar 2023 kl. 9:00 - 14:00. 6 kennslustundir.

Verð: Fagaðili: 22.900.-  Aðstandandi: 6.900.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, þjálfun og kennslu barna á einhverfurófi.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 50.

Lýsing námskeiðs:
Fjallað er um einhverfurófið, helstu einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum og umræðum, auk fræðslumyndbanda. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:

  • auki þekkingu sína á einhverfurófinu
  • þekki hvað felst í greiningu á einhverfu
  • auki skilning sinn á þörfum þessa hóps barna og fjölskyldna þeirra og hvað felst í góðri þjónustu
  • þekki mikilvægi samstarfs fagfólks og foreldra   

Umsjón:
Guðrún Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi, Ingibjörg Bjarnadóttir, barnalæknir og Svandís Ása Sigurjónsdóttir sálfræðingur. 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Einhverfurófið - grunnnámskeið lýkur 5. janúar 2023.

Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.

Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.