Námskeiðið er haldið rafrænt
Dagsetning og tími: 7. og 14. október 2025 frá 12:30-15:30 báða dagana. Samtals 6 klukkustundir.
Verð: Fagaðili: 22.200.- Aðstandandi: 11.100.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er hannað fyrir foreldra barna á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Námskeiðið getur einnig nýst foreldrum eldri barna, sem og fagaðilum.
Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 10.
Lýsing:
Námskeiðið er hagnýtt fræðslunámskeið um kvíða þar sem farið er yfir helstu einkenni kvíða hjá ungum börnum með ódæmigerðan taugaþroska. Farið verður yfir aðferðir til að draga úr kvíðaeinkennum barna og minnka líkur á hamlandi kvíða síðar á lífsleiðinni.
Milli tíma vinna þátttakendur stutt heimaverkefni sem m.a. snýr að því að bera kennsl á kvíðaeinkenni. Mikilvægt er að þátttakendur mæti í báða tímana.
Markmið:
Að þátttakendur
• þekki eðli kvíða hjá ungum börnum með ódæmigerðan taugaþroska s.s. einhverfu, þroskahömlun, málþroskafrávik og ADHD.
• þekki leiðir til að takast á við kvíðaeinkenni og draga úr óöryggi barnanna
Umsjón:
Katrín Björk Bjarnadóttir, sálfræðingur
Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar
Skráningu á námskeiðið Kvíði barna með ódæmigerðan taugaþroska lýkur 29. september 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.
Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér
7. okt 2025 - 14. okt 2025
þri
12:30-16:00
Fjarkennsla