-Hagnýtar leiðir til að styðja við tjáskipti barna-
Staðsetning: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Dalshrauni 1b, 2. hæð.
Dagsetning og tími: 15. september frá 13.00 - 16.00.
Þátttakendur geta skráð sig í klukkutíma handleiðslutíma að loknu námskeiði.
Verð: Fagaðili: kr. 12.600.- Aðstandandi: kr. 8.300.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað þeim sem áhuga hafa á að kynna sér fjölbreyttar og styðjandi tjáskiptaleiðir (AAC). Sérstaklega á það við um foreldra, starfsfólk leikskóla, grunnskóla og annarra stofnana.
Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 8 og hámarksfjöldi er 30.
Lýsing:
Fjölbreyttar tjáskiptaleiðir og sérstaklega sjónrænn stuðningur styður við og eykur tjáskipti og málskilning. Rannsóknir sýna að fjölbreyttar og styðjandi tjáskiptaleiðir koma ekki í veg fyrir að talað mál þroskist. Aðgengi að fjölbreyttum og styðjandi tjáskiptaleiðum eykur samskipti, þátttöku og sjálfstæði einstaklinga.
Fjallað verður um mismunandi tjáskiptaleiðir eins og hátækni- og lágtæknilausnir og gagnreynda aðferðafræði við innleiðingu á þessum leiðum. Sérstök áhersla verður lögð á kynningu og mikilvægi notkunar á kjarnorðaforða (core vocabulary) og farið yfir hagnýt ráð varðandi hvernig er best að byrja innleiðingu.
Markmið
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:
- þekkja réttindi barna til tjáskipta
- vita hvaða tjáskiptaleiðir eru í boði
- þekkja muninn á kjarnorðaforða og jaðarorðaforða (fringe vocabulary)
- geta nýtt myndrænan stuðning og fjölbreyttar og styðjandi tjáskiptaleiðir með börnum í leik og starfi
Umsjón:
Ragna Laufey Þórðardóttir, talmeinafræðingur.
Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar:
Skráningu á námskeiðið lýkur 7. september 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.
Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér