Staðsetning: Fjarkennsla
Dagsetning og tími: 15. og 16. nóvember 2023, klukkan 09:00-16:00 báða dagana.
Verð: Fagaðili: 44.300 - Aðstandandi: 12.700.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með frávik í þroska í leikskólum.
Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 40.
Lýsing
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri. Einnig er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins og um daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og segja frá þátttöku sinni í heildstæðri atferlisíhlutun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.
Markmið
Að þátttakendur:
- þekki undirstöðuþætti heildstæðrar atferlisíhlutunar
- Þekki leiðir til að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun barna með þroskafrávik
- þekki til þeirrar reynslu af skipulagi og framkvæmd atferlisíhlutunar í leikskólum hér á landi
Umsjón, skipulagning og kennsla:
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir atferlisfræðingur og Katrín Sveina Björnsdóttir atferlisfræðingur.,
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráningu á námskeiðið Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik lýkur 12. nóvember 2023, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.