Allt um ástina (fjarkennsla 0424)

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað kennurum og starfsfólki sem kenna efstu bekkjum grunnskóla og á starfsbrautum í framhaldsskóla.

Hvar og hvenær: 18. apríl 2024  í fjarkennslu (zoom)

Hámarksfjöldi:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi 20

Lýsing:
Allt um ástina er námskeið ætlað kennurum og öðru starfsfólki sem hafa huga á að kenna námsefnið. Námsefnið skiptist í 11.kafla.

Á námskeiðinu verður farið yfir námsefnið sem er aðgengilegt á vef á vegum Menntamálastofnunar og er án endurgjalds. Námsefnið fjallar um sjálfsmyndina, mikilvægi þess að standa með sjálfum sér, hreinlæti og líkamstjáningu. Einnig er farið yfir ástarmálin út frá ýmsum hliðum, samanber hvað er daður, hvernig kynnist maður öðrum með náin sambönd í huga og hvað greinir á milli heilbrigðra og óheilbrigðra ástarsambanda. Þá er auk þess fjallað um kynlíf, getnaðarvarnir og kynsjúkdóma og um muninn á kynlífi og klámi. Einnig er reifaðir þættir um lög og reglur í tengslum við ólögleg sambönd. Þá er fjallað um netið og hvernig megi stunda örugg samskipti í raun- og netheimi með uppbyggjandi hætti.

Markmið:
Efla færni til að kenna námsefnið Allt um ástina.

Umsjón:
María Jónsdóttir félagsráðgjafi
Thelma Rún van Erven sálfræðingur

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar:
Skráningu á námskeiðið lýkur 15. apríl 2024. Skráningu er eingöngu hægt að ljúka með debet- eða kreditkortagreiðslu. Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið. 

Námskeiðið er tvær kennslustundir.