Einstakt tækifæri – höfundar námsefnisins Relationships Decoded koma til Íslands
Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á kynningu og þjálfun vegna námsefnisins Relationships Decoded for Adolescents, eða Sambönd og samskipti fyrir ungmenni. Um er að ræða glænýtt gagnreynt kennsluefni um sambönd og samskipti ætlað ungmennum með öðruvísi taugaþroska.
Námsefnið Sambönd og samskipti (Relationships Decoded), sem ætlað er fullorðnum með öðruvísi taugaþroska, hefur þegar verið þýtt á íslensku og er aðgengilegt á vef MMS. Nú hafa höfundar þess efnis búið til sambærilegt námsefni fyrir ungmenni frá 12 ára aldri undir heitinu Relationships Decoded for Adolescents. Undirbúningur er hafinn að íslenskri þýðingu þessa nýja námsefnis.
Af þessu tilefni koma höfundar námsefnisins til Íslands og kynna efnið fyrir fagfólki, aðstandendum og öðrum sem koma að stuðningi, fræðslu eða þjónustu við ungmenni með öðruvísi taugaþroska. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast efninu beint frá þeim sem þróuðu það.
Takmarkað sætaframboð er í boði.
Um námsefnið
Relationships Decoded for Adolescents fjallar um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi og félagslega færni ungmenna. Efnið er þróað sérstaklega fyrir ungmenni og miðar að því að styðja þau við að skilja betur ólíkar tegundir samskipta og sambanda, bera kennsl á heilbrigð og óheilbrigð samskipti og öðlast aukið öryggi í félagslegum aðstæðum. Frekari upplýsingar um Relationships Decoded má finna á vef höfundanna.
Boðið verður upp á tvo viðburði
Kynning á efninu - 5. október
Kynningin er ætluð fagfólki, aðstandendum og öðrum áhugasömum sem vilja kynna sér námsefnið og fræðilegan grunn þess.
Í kynningunni verður meðal annars farið yfir:
- hvers vegna fræðsla um sambönd og samskipti er mikilvæg fyrir ungmenni með öðruvísi taugaþroska
- af hverju sérstakt námsefni var þróað fyrir þennan aldurshóp
- rannsóknir sem styðja mikilvægi slíkrar fræðslu
- rannsóknir og þróunarvinnu sem unnin hefur verið í samstarfi við UC Davis MIND Institute
- reynslu og endurgjöf frá ungmennum, fjölskyldum og þjónustuaðilum sem hafa prófað efnið í kennslu, einstaklingsþjálfun og minni hópum
- dæmi um innihald námsefnisins og hvernig það styður við gagnreyndar kennsluaðferðir
Þjálfunardagur fyrir fagfólk - 6. október
Þjálfunardagurinn er ætlaður fagfólki sem kemur til með að nota námsefnið í beinni kennslu, fræðslu eða þjálfun með ungmennum.
Á þjálfunardeginum fá þátttakendur nánari innsýn í uppbyggingu námsefnisins og hvernig hægt er að nálgast og nota kennsluáætlanir, sjónrænan stuðning og hagnýt verkefni í starfi. Áhersla verður á praktískar aðferðir, virkni þátttakenda og leiðir til að nýta efnið á markvissan og árangursríkan hátt.
Athugið að ekki er hægt að skrá sig eingöngu á þjálfunardaginn. Fagfólk sem vill taka þátt í þjálfunardeginum skráir sig á bæði kynningu og þjálfunardag.
Skráning
Boðið er upp á tvær skráningarleiðir:
Takmarkað sætaframboð er í boði og því eru áhugasöm hvött til að skrá sig tímanlega.