Sambönd og samskipti fyrir ungmenni – kynning

Staðsetning: Húsnæði Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 72, Reykjavík.

Dagsetning og tími: Mánudagur 5. október 2026 frá klukkan 13:00–15:30. Samtals 2,5 klukkustundir.

Verð: Fagaðili/starfsfólk: 18.500 kr. Aðstandandi: 9.250 kr.

Ætlar þú líka á þjálfunardaginn?

Þá skaltu ekki skrá þig hér, heldur velja skráninguna „Sambönd og samskipti fyrir ungmenni – kynning og þjálfunardagur“. Ekki er hægt að bæta þjálfunardeginum við síðar.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Kynningin er ætluð breiðum hópi, meðal annars foreldrum, aðstandendum, kennurum, skólastjórnendum, fagfólki og öðrum sem koma að stuðningi, fræðslu eða þjónustu við ungmenni með öðruvísi taugaþroska svo sem þroskahömlun og/eða einhverfu.

Fjöldi þátttakenda

Hámarksfjöldi þátttakenda er 100.

Lýsing

Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á kynningu á nýju gagnreyndu námsefni Relationships Decoded for Adolescents eða Sambönd og samskipti fyrir ungmenni. Námsefnið er ætlað ungmennum með öðruvísi taugaþroska frá 12 ára aldri og fjallar um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni.

Námsefnið Sambönd og samskipti (Relationships Decoded), sem ætlað er fullorðnum með öðruvísi taugaþroska, hefur þegar verið þýtt á íslensku og er aðgengilegt á vef MMS. Nú hafa höfundar þess efnis búið til sambærilegt námsefni fyrir ungmenni, Relationships Decoded for Adolescents, og er undirbúningur hafinn að íslenskri þýðingu þess

Efnið er þróað sérstaklega fyrir ungmenni og miðar að því að styðja þau við að skilja betur ólíkar tegundir samskipta og sambanda, bera kennsl á heilbrigð og óheilbrigð samskipti og öðlast aukið öryggi í félagslegum aðstæðum.

Í kynningunni verður farið yfir:

  • Hvers vegna fræðsla um sambönd og samskipti er mikilvæg fyrir ungmenni
  • Af hverju sérstakt námsefni var þróað fyrir þennan aldurshóp
  • Rannsóknir sem styðja mikilvægi slíkrar fræðslu
  • Þróun verkefnisins í samstarfi við UC Davis MIND Institute
  • Reynslu og endurgjöf frá ungmennum, fjölskyldum og þjónustuaðilum sem hafa prófað efnið í kennslu, einstaklingsþjálfun og minni hópum
  • Dæmi um innihald námsefnisins og hvernig það styður við gagnreyndar kennsluaðferðir

 

Að lokinni kynningu eiga þátttakendur að:

  • Hafa fengið yfirsýn yfir námsefnið Relationships Decoded for Adolescents
  • Þekkja helstu áherslur efnisins um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni
  • Skilja betur hvers vegna fræðsla af þessu tagi er mikilvæg fyrir ungmenni með öðruvísi taugaþroska
  • Hafa fengið innsýn í rannsóknir, þróun og reynslu af notkun námsefnisins

 

Kennarar frá Relationships Decoded for Adolescents

Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar:

Skráningu á námskeiðið Sambönd og samskipti fyrir ungmenni – kynning lýkur 27. september 2026, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss.Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.

Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.

Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér

Heiti námskeiðs
Dagsetning
Dagar
Tími
Staðsetning
5. okt 2026
mán
13:00-15:30
Húsnæði Hjálpræðishersins RVK