Staðsetning: Húsnæði Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 72, Reykjavík.
Dagsetning og tími: Mánudagur 5. október 2026 frá klukkan 13:00–15:30 og þriðjudagur 6. október 2026 frá klukkan 12:15–16:00. Samtals 6,5 klukkustundir.
Verð: Fagaðili/starfsfólk, báðir dagar: 55.000 kr.
Athugið:
Þessi skráning er eingöngu fyrir fagfólk og gildir fyrir bæði kynningu mánudaginn 5. október og þjálfunardag þriðjudaginn 6. október. Þjálfunardagurinn er ekki í boði sem stakur skráningarkostur.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem kemur til með að nota námsefnið í beinni kennslu, fræðslu eða þjálfun með ungmennum með öðruvísi taugaþroska svo sem þroskahömlun og/eða einhverfu.
Fjöldi þátttakenda
Hámarksfjöldi þátttakenda er 70.
Lýsing
Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp á kynningu og þjálfun vegna nýs gagnreynds námsefnis, Relationships Decoded for Adolescents, eða Sambönd og samskipti fyrir ungmenni. Námsefnið er ætlað ungmennum með öðruvísi taugaþroska frá 12 ára aldri og fjallar um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni.
Námsefnið Sambönd og samskipti (Relationships Decoded), sem ætlað er fullorðnum með öðruvísi taugaþroska, hefur þegar verið þýtt á íslensku og er aðgengilegt á vef MMS. Nú hafa höfundar þess efnis búið til sambærilegt námsefni fyrir ungmenni, Relationships Decoded for Adolescents, og er undirbúningur hafinn að íslenskri þýðingu þess.
Efnið er þróað sérstaklega fyrir ungmenni og miðar að því að styðja þau við að skilja betur ólíkar tegundir samskipta og sambanda, bera kennsl á heilbrigð og óheilbrigð samskipti og öðlast aukið öryggi í félagslegum aðstæðum.
Fyrri dagurinn er kynning á námsefninu. Þar verður farið yfir:
- Hvers vegna fræðsla um sambönd og samskipti er mikilvæg fyrir ungmenni með öðruvísi taugaþroska
- Af hverju sérstakt námsefni var þróað fyrir þennan aldurshóp
- Rannsóknir sem styðja mikilvægi slíkrar fræðslu
- Þróun verkefnisins í samstarfi við UC Davis MIND Institute
- reynslu og endurgjöf frá ungmennum, fjölskyldum og þjónustuaðilum sem hafa prófað efnið í kennslu, einstaklingsþjálfun og minni hópum
- Dæmi um innihald námsefnisins og hvernig það styður við gagnreyndar kennsluaðferðir
Seinni dagurinn er þjálfunardagur fyrir fagfólk. Á þjálfunardeginum fá þátttakendur nánari innsýn í uppbyggingu námsefnisins og hvernig hægt er að nýta kennsluáætlanir, sjónrænan stuðning og hagnýt verkefni í starfi. Áhersla verður á praktískar aðferðir, virkni þátttakenda og leiðir til að nýta efnið á markvissan og árangursríkan hátt.
Markmið:
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:
- Hafa fengið yfirsýn yfir námsefnið Relationships Decoded for Adolescents
- Þekkja uppbyggingu kennsluáætlana og sjónræns stuðnings
- Geta nýtt hagnýtar aðferðir til að styðja við fræðslu um sambönd, samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni
- Geta undirbúið notkun námsefnisins í beinni kennslu, fræðslu eða þjálfun með ungmennum með öðruvísi taugaþroska
Fyrirlesarar frá Relationships Decoded for Adolescents
Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar:
Skráningu á námskeiðið Sambönd og samskipti fyrir ungmenni – kynning og þjálfunardagur lýkur 27. september 2026, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss.Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.
Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér