Systkinasmiðja eldri börn (1025)

Staðsetning: Húsnæði Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 72.

Dagsetning og tími: Lau. 4. og sun. 5. október 2025 frá klukkan 12:00-15:00 báða dagana.

Verð: kr. 15.900 á barn.

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Systkinasmiðjan er fyrir krakka á aldrinum 12 - 14 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga fötluð systkini.

Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 6 og hámarksfjöldi 12.

Lýsing:

Á námskeiðinu leysum við saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, tengt systkinum okkar og margt fleira. Þessa þætti nálgumst við meðal annarra í gegnum ýmsa skemmtilega leiki þar sem hvert barn fær að njóta sín sem best og skemmti sér vel.

Námskeiðið er ekki meðferðarúrræði heldur fyrst og fremst til að hjálpa börnum að tjá sig um reynslu og upplifun sína af því að eiga systkini með sérþarfir og að skapa aðstæður fyrir jafningjastuðning.

Umsjón
Herdís Hersteinsdóttir þroskaþjálfi.

Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar:

Skráningu á námskeiðið Systkinasmiðjan - eldri börn lýkur 27. september 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss.Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.

Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.

Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér

Heiti námskeiðs
Dagsetning
Dagar
Tími
Staðsetning
4. okt 2025 - 5. okt 2025
lau-sun
12:00-15:00
Húsnæði Hjálpræðishersins RVK