Stacy Everson, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í kynfræðslu fyrir einstaklinga með miklar stuðningsþarfir, heimsótti nýverið Ísland og stýrði sérhæfðu námskeiði fyrir afmarkaðan hóp fagaðila. Ráðgjafar- og greiningarstöð hélt námskeiðið að frumkvæði Maríu Jónsdóttur félagsráðgjafa, sem sá um undirbúning og framkvæmd þess í samvinnu við fræðslustjóra RGR.
Á námskeiðinu var lögð áhersla á hagnýtar aðferðir í kynfræðslu fyrir ungmenni sem þurfa verulega aðstoð og íhlutun í daglegu lífi. Stacy Everson býr yfir áratuga reynslu í starfi með einstaklingum með flóknar stuðningsþarfir og í því að takast við áskoranir tengdar kynfræðslu og kynferðislegri hegðun. Hún hefur þróað aðferðir sem miða að því að kenna viðeigandi kynferðislega hegðun.
Á námskeiðinu voru raunveruleg einstaklingsmál rædd og unnið með þau. Þátttakendur fá svo áframhaldandi handleiðslu frá Stacy Everson yfir níu mánaða tímabil, þar sem aðferðir eru þróaðar, prófaðar og metnar í samvinnu við hópinn.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt sértækt námskeið fer fram á Íslandi með alþjóðlegum sérfræðingi í fararbroddi. Námskeiðið tókst afar vel og lagði traustan grunn að áframhaldandi þróun aðferða sem þátttakendur munu nýta sér og þróa frekar.

Þátttakendur á námskeiðinu ásamt Stacy