Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara á sviði Langtímaeftirfylgdar. Á sviðinu er veitt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri sem þurfa sérhæfða eftirfylgd og ráðgjöf. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Mat, ráðgjöf og eftirfylgd á sviði hreyfifærni og þátttöku fatlaðra barna og unglinga
-
Mat á hreyfifærni barna með viðurkenndum próf- og matstækjum
-
Ráðgjöf til barna, fjölskyldna þeirra og annarra fagaðila t.d. á sviði daglegrar færni, notkunar hjálpartækja og aðgengi
-
Öflun þekkingar á tæknilausnum og hjálpartækjum fyrir markhóp stofnunarinnar
-
Gerð umsókna og skýrslna
-
Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
-
Þátttaka í rannsókna- og fræðslustarfi innan og utan stofnunar
-
Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
-
Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
-
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.
Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningarstöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og lögð er áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2024
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf