Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf ráðgjafa. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna og ungmenna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna og ungmenna með alvarlegar raskanir í taugaþroska
-
Sérhæfð ráðgjöf vegna t.d. hegðunarvanda, fæðuinntöku og svefnvanda
-
Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
-
Þátttaka í rannsóknar- og fræðslustarfi innan og utan stofnunar
-
Meistarapróf í hagnýtri atferlisgreiningu eða sérkennslufræðum
-
Reynsla af ráðgjöf til foreldra og kennara vegna barna og ungmenna með alvarlegar raskanir í taugaþroska
-
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að starfa í teymi
-
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu**.** Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.
Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningastöð er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.
Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf