Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar 2024

Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi 2. og 3. maí 2024. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski - Mætum ólíkum þörfum frá bernsku til fullorðinsára.

Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á mikilvægi þess að huga að ólíkum þörfum hvað kynheilbrigði varðar til að mæta betur börnum með fjölbreyttan taugaþroska, allt frá fyrstu aldursárum yfir á fullorðinsaldur. Sjónum verður beint að stöðu og þjónustu í þessum málaflokki sem og kennslu og fræðslu um kynheilbrigði fyrir börn og ungmenni sem læra eftir óhefðbundnum leiðum og þurfa aðlögun í kennslu um kynheilbrigði.

Takið dagana frá, nánari upplýsingar koma fljótlega!