Um 510 manns tóku þátt í vorráðstefnu um þátttöku og framtíð fatlaðra barna

Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar fór fram dagana 7. og 8. maí á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi. Í ár var ráðstefnan haldin í samstarfi við Gló Æfingastöð undir yfirskriftinni Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.

Tæplega 510 manns tóku þátt í ráðstefnunni, bæði í sal og í streymi. Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur þeirra sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum og skapar mikilvægt samtal um viðhorf, þjónustu og framtíð fatlaðra barna.

Á ráðstefnunni var sjónum beint að því að horfa á það sem barnið getur gert í stað þess að einblína eingöngu á áskoranir og frávik. Þar voru meðal annars F-orðin fyrir þroska barna í brennidepli: Færni, Fjölskylda, Form, Vinir/Félagar, Fjör og Framtíð. Þau minna á mikilvægi þess að færa áherslu frá takmörkunum yfir í styrkleika, færni, þátttöku og lífsgæði barna.

Einnig var fjallað um hvernig samfélagið, þjónustukerfi, skólar, tómstundir og nærumhverfi barna geta skapað raunveruleg tækifæri til þátttöku í daglegu lífi. Rauði þráðurinn var að þátttaka fatlaðra barna er ekki aðeins einstaklingsbundið viðfangsefni heldur sameiginleg ábyrgð samfélagsins.

Dagskráin var fjölbreytt og dró fram ólík sjónarhorn, bæði fræðileg og byggð á lifaðri reynslu. Í erindum og samtölum ráðstefnunnar var lögð áhersla á að horfa til styrkleika barna, aðstæðna þeirra og þeirra tækifæra sem samfélagið skapar. Umræðan undirstrikaði mikilvægi þess að hlusta á raddir barna, ungmenna og fjölskyldna og þróa þjónustu sem styður við þátttöku, lífsgæði og framtíðarsýn. Hér má nálgast dagskrá ráðstefnunnar.

Ráðstefnunni lauk með áhrifamiklum hætti og ljóst var að viðfangsefnið snerti þátttakendur djúpt. Eftir stóð sterk áminning um að tækifæri til þátttöku eiga ekki að vera háð tilviljunum, heldur þurfa þau að vera hluti af því hvernig við skipuleggjum þjónustu, skóla, tómstundir og samfélag.

Ráðgjafar- og greiningarstöð þakkar Gló Æfingastöð kærlega fyrir gott og gefandi samstarf við undirbúning og framkvæmd ráðstefnunnar. Samstarfið er sprottið úr sameiginlegum vilja til að halda áfram að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra og stuðla að inngildandi samfélagi.

Einnig færum við fyrirlesurum, fundarstjórum, þátttakendum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við að gera ráðstefnuna að veruleika bestu þakkir.

Breytingar verða ekki til í einu kerfi, einni stofnun eða einni fagstétt. Þær verða til þegar fólk kemur saman, deilir þekkingu, hlustar hvert á annað og stefnir í sömu átt.