Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur á sviði fötlunar, hlaut heiðursverðlaun Sálfræðingafélags Íslands á Sálfræðiþingi sem haldið var 27. mars 2026. Hún lét af störfum hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð á síðasta ári eftir langan og farsælan feril.
Sigríður Lóa var stödd erlendis þegar verðlaunin voru veitt og gat því ekki veitt þeim viðtöku. Emilía Guðmundsdóttir sálfræðingur tók við verðlaununum fyrir hennar hönd.
Sigríður Lóa starfaði hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð frá árinu 1995 til ársins 2022, þegar hún náði sjötugsaldri, en hélt þó áfram að sinna afmörkuðum verkefnum fyrir stofnunina. Árið 2023 lauk hún doktorsgráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands með ritgerðinni Að bera kennsl á einhverfu snemma.
Hún hefur átt lykilþátt í uppbyggingu þekkingar á hagnýtri atferlisgreiningu á Íslandi og verið afkastamikill rannsakandi á sviði einhverfu. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum alþjóðlegum rannsóknar- og þróunarverkefnum, meðal annars á vegum Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, og lagt sitt af mörkum til þróunar mikilvægra skimunar- og kennslutækja. Þar má nefna íslenska útgáfu M-CHAT-R/F skimunartækisins fyrir einhverfu hjá smábörnum og margmiðlunarefnið Skref fyrir skref.
Sigríður Lóa ritstýrði einnig, ásamt Evald Sæmundsen, yfirgripsmiklu riti um einhverfu á Íslandi, Litróf einhverfunnar, sem kom út árið 2014. Doktorsverkefni hennar stuðlaði jafnframt að auknu samstarfi milli Ráðgjafar- og greiningarstöðvar og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um fræðslu og þróun vinnulags fyrir heilbrigðisstarfsfólk í ung- og smábarnavernd þegar grunur vaknar um einhverfu í 18 mánaða skoðun. Með þessu vinnulagi hafa fjölskyldur ungra barna með einkenni einhverfu greiðari aðgang að þjónustu R, þar sem boðið er upp á ráðgjöf, fræðslu og nánari greiningu.
Sigríður Lóa hefur um árabil lagt ómetanlegt framlag til málefna fatlaðra og fjölskyldna þeirra. Hún hefur jafnframt haft víðtæk áhrif á faglegt starf, kennslu og handleiðslu innan sálfræðinnar og er þekkt fyrir fagmennsku, heilindi og virðingu í störfum sínum. Hún hefur verið mörgum fyrirmynd á vettvangi sálfræðinnar.
Við óskum henni innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu 👏
