Ráðgjafar- og greiningarstöð óskar eftir sjúkraþjálfara til starfa!

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með raskanir í taugaþroska

  • Mat og ráðgjöf varðandi hjálpartæki, umsóknir til Sjúkratrygginga og eftirfylgd

  • Mat á skyn- og hreyfifærni með viðurkenndum próf- og matstækjum og klínískum athugunum, úrvinnsla og túlkun niðurstaðna ásamt mati á íhlutun eða úrræðum

  • Skráning og skýrslugerð

  • Sjúkraþjálfun í einstaka tilfellum t.d. ungra barna í smábarnateymi

  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar

  • Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi innan og utan stofnunar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari

  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi

  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningarstöð er með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og lögð er áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma

Starfið fer aðallega fram í húsnæði stofnunarinnar í Hafnarfirði en einnig á heimilum, í skólum um allt land og í gegnum fjarfundabúnað.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Helga Kristinsdóttir, helga.kristinsdottir@rgr.is

Sími: 510 8400

Sækja um starf