Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sálfræðings. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska
-
Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar m.a. varðandi greiningu, ráðgjöf og eftirfylgd
-
Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi innan og utan stofnunar
-
Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur
-
Þekking og reynsla af notkun helstu greiningartækja vegna greiningar þroskafrávika hjá börnum
-
Þekking og reynsla af vinnu með börnum og/eða unglingum
-
Þekking og reynsla af ráðgjöf og fræðslu til foreldra og/eða fagfólks
-
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
-
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.
Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningarstöð er með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.
Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf