Teymi grænna skrefa
Frá vinstri: Heimir Bjarnason, Sigríður Bachmann, Sædís Arnardóttir og Helga Kristín Gestsdóttir
Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur náð öðrum áfanga í verkefninu Græn skref, sem er umhverfisstjórnunarkerfi fyrir ríkisstofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins. Markmið verkefnisins er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfsemi og efla umhverfisvitund á vinnustöðum.
Grænu skrefin eru fimm talsins og felast í markvissum aðgerðum sem miða að því að gera rekstur stofnana vistvænni. Aðgerðirnar ná meðal annars til flokkunar og minni sóunar, vistvænna innkaupa, orkunýtingar, samgangna og fræðslu til starfsfólks um umhverfismál.
Til þess að ná hverju skrefi þarf vinnustaður að uppfylla stóran hluta þeirra aðgerða sem tilgreindar eru í gátlista verkefnisins og fara í gegnum úttekt frá umsjónaraðilum Grænna skrefa.
Á Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur sérstakt teymi starfsmanna unnið að innleiðingu verkefnisins og stýrt aðgerðum sem miða að því að minnka umhverfisáhrif starfseminnar og auka umhverfisvitund innan vinnustaðarins.
RGR mun áfram vinna að frekari aðgerðum í umhverfismálum með það að markmiði að ná næstu skrefum verkefnisins og efla enn frekar sjálfbæra starfshætti í rekstri stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefnum www.graenskref.is