Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf læknis á nýju Greiningasviði.

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf læknis á nýju Greiningasviði. Á sviðinu er veitt þjónusta við ung börn, börn á leik-, grunn- og framhaldsskólaaldri og fjölskyldur þeirra. Leitað er að öflugum lækni sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar. Barnalæknar auk unglækna sem eru í sérfræðinámi í barnalækningum eða á leið í slíkt nám eru sérstaklega hvattir til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska. Hlutverk læknis er m.a. heilsueftirlit, orsakagreining og ráðgjöf til foreldra og þjónustuaðila

  • Vinna í þverfaglegum teymum. Læknir tekur þátt í athugun á börnum í samstarfi við aðra sérfræðinga

  • Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi innan og utan stofnunarinnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðileyfi í barnalækningum er æskilegt en ekki skilyrði

  • Reynsla af þverfaglegu starfi við mat og ráðgjöf

  • Reynsla af fræðslu og rannsóknum

  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi

  • Góð færni við að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.

Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa um 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is.

Ráðgjafar- og greiningarstöð er með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.

Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Þorsteinsdóttir, gudrun.thorsteinsdottir@rgr.is

Sími: 510 8400

Solveig Sigurðardóttir, solveig.sigurdardottir@rgr.is

Sími: 510 8400

Sækja um starf