Nýtt námskeið: Fræðsla um einhverfu á pólsku

Nýtt námskeið hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð
 
Við bjóðum nú í fyrsta sinn upp á fræðslu um einhverfurófið á pólsku í samvinnu við Katarzynu Kubis verkefnastjóra hjá Þroskahjálp.
 
Námskeiðið er ætlað pólskumælandi foreldrum og fagfólki sem annast, styðja og kenna börnum á einhverfurófi. Fjallað verður um einkenni einhverfu, greiningu og mikilvægi samstarfs foreldra og fagfólks.
 
📅 15. apríl
🕐 13:00–16:00
📍 Suðurlandsbraut 72
 

Skráning og nánari upplýsingar

 

Endilega deilið áfram til þeirra sem gætu haft gagn af þessari fræðslu.