Heildstæð atferlisíhlutun (0926)

Staðsetning: Húsnæði Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, Dalshrauni 1b.

Dagsetning og tími: 8., 9. og 10. september 2026, klukkan 9:00-16:00. Samtals 17 klukkustundir. ATH! Fimmtudaginn 10. sept. eru þátttakendur annað hvort í vinnuhópi 9:00 - 12:00 eða 13:00 - 16:00

Verð: Fagaðili: kr. 76.500.- Aðstandandi: kr. 26.700.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir leikskólabörn með ódæmigerðan taugaþroska.

Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 13.

Lýsing

Á námskeiðinu eru kenndar leiðir til að hafa jákvæð áhrif á hegðun og nám leikskólabarna sem eru í snemmtækri íhlutun. Notast er við helstu aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, myndböndum, umræðum og verkefnum.

Markmið
Að þátttakendur:

  • Læri hagnýtar leiðir til að takast á við algengar áskoranir í vinnu með börnum með frávik í þroska svo sem krefjandi hegðun, tjáskipti, svefnvanda, fæðuvanda og hreinlætisþjálfun.
  • Þekki náttúrulega kennslu og geti skapað námstækifæri í daglegu starfi.
  • Þekki aðgreindar kennsluæfingar/beina kennslu, ásamt skráningum.
  • Geti skipulagt og haldið utan um heildstæða atferlisíhlutun..

 

Umsjón, skipulagning og kennsla:
Anna Marín Skúladóttir, Eva Ýr Heiðberg, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir, Lilja Árnadóttir, Margrét Unnur Jóhannesdóttir og Rakel Rós A. Snæbjörnsdóttir.

Kennarar eru allir klínískir atferlisfræðingar.

 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráningu á námskeiðið Snemmtæk atferlisíhlutun lýkur 31. ágúst 2026, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.

Heiti námskeiðs
Dagsetning
Dagar
Tími
Staðsetning
8. sep 2026 - 10. sep 2026
þri-fim
09:00-16:00
Ráðgj. og greiningarstöð