Jafnlaunastefna þessi kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR) þau réttindi sem kveðið er á um í 6. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
RGR greiðir laun eftir umfangi og eðli starfa og tekur mið af þeim kröfum sem störf gera. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga, studdar rökum og tryggi að sömu laun og sömu kjör séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Skal starfsfólk fá greitt fyrir störf sín út frá verðmæti þeirra óháð kyni.
Til þess að framfylgja lögum um launajafnrétti skuldbindur stofnunin sig til að:
• Skjalfesta og viðhalda með stöðugum umbótum vottuðu jafnlaunastjórnunarkerfi í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.
• Framkvæma launagreiningu minnst einu sinni á ári þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og athugað hvort mælist óútskýrður munur á launum eftir kyni.
• Kynna fyrir starfsfólki helstu niðurstöður launagreiningar hvað varðar óútskýrðan kynbundinn launamun innan einstakra starfshópa, nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því.
• Bregðast við frábrigðum með stöðugum umbótum og eftirliti.
• Framkvæma innri úttekt árlega.
• Rýna kerfið og árangur þess með stjórnendum a.m.k. árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd.
• Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjara- og stofnanasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta árlega að þeim sé hlítt.
• Kynna stefnuna fyrir starfsfólki og hafa hana aðgengilega á ytri vef stofnunarinnar.
Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna. Mannauðsstjóri er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunastjórnunarkerfi og skal fyrirspurnum og ábendingum beint til hans.
Soffía Lárusdóttir, forstjóri
Útgáfudagur 1. febrúar 2023 (STE-002-4)