Kennt í fjarkennslu
Dagsetning og tími: 21. og 22. janúar 2025, klukkan 9:00-16:00. Kennt í fjarfundarbúnaði. Samtals 14 klukkustundir.
Verð: Fagaðili: kr. 51.800.- Aðstandandi: kr. 21.000.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með frávik í þroska í leikskólum.
Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 10.
Lýsing
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og draga úr óæskilegri hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri. Einnig er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins og um daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.
Markmið
Að þátttakendur:
- þekki undirstöðuþætti heildstæðrar atferlisíhlutunar
- þekki leiðir til að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun barna með þroskafrávik
- þekki til þeirrar reynslu af skipulagi og framkvæmd atferlisíhlutunar í leikskólum hér á landi.
Umsjón, skipulagning og kennsla:
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Birna Hrund Björnsdóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir atferlisfræðingur, Lilja Árnadóttir, atferlisfræðingur og Rakel Rós A. Snæbjörnsdóttir, atferlisfræðingur.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráningu á námskeiðið Snemmtæk atferlisíhlutun lýkur 13. janúar 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.