Vorráðstefna 2026: Sköpum tækifæri - þátttaka og framtíð fatlaðra barna

Í ár er vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar haldin í samvinnu við Gló Æfingastöð. Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur þeirra sem starfa með fötluðum börnum og skapar mikilvægt samtal um réttindi, þjónustu og framtíðarsýn.

Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi dagana 7. og 8. maí 2026. Hún stendur í einn og hálfan dag og lýkur um hádegi á föstudeginum.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.

 

Af hverju þessi ráðstefna?

Þátttaka fatlaðra barna er ekki sjálfgefin. Hún mótast af því hvernig samfélagið er skipulagt, hvaða viðhorf ríkja og hvernig þjónustukerfi, skólar og umhverfi skapa eða takmarka tækifæri barna til að taka þátt í daglegu lífi.

Lögfesting Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks undirstrikar rétt fatlaðra barna til þátttöku til jafns við önnur börn og ábyrgð samfélagsins til að skapa skilyrði fyrir henni. Sá réttur kallar á gagnrýna skoðun á starfsháttum, þjónustu og samvinnu með áherslu á hvernig við færum réttindi þeirra úr orðum í framkvæmd.

 

Markmið ráðstefnunnar er að efla þekkingu og umræðu um þátttöku fatlaðra barna og stuðla að þróun starfshátta og hagnýtra lausna sem styðja við raunveruleg tækifæri til þátttöku fyrir öll börn hvort sem það er í skólaumhverfinu, tómstundaúrræðum eða daglegum viðfangsefnum barna og fjölskyldna þeirra.

Ráðstefnan leitast meðal annars við að:

  • Varpa ljósi á hvernig samfélagslegar aðstæður, umhverfi og þjónustukerfi geta ýtt undir eða hamlað þátttöku fatlaðra barna
  • Tengja saman mannréttindalegar skuldbindingar samfélagsins og hagnýtar leiðir til breytinga í starfi og þjónustu
  • Draga fram ólík sjónarhorn: fræðileg, fagleg og byggð á lifaðri reynslu barna og fjölskyldna
  • Styðja við þróun þjónustu sem byggir á styrkleikum, sjálfstæði og framtíðarsýn barna og ungmenna

 

Ráðstefnan leiðir saman fagfólk, foreldra, rannsakendur og aðra sem láta sig velferð barna varða og skapar vettvang fyrir miðlun þekkingar, samtal og þróun framtíðarsýnar um þjónustu við fötluð börn.

Hér má nálgast drög að dagskrá ráðstefnunnar

 

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru:

  • Snæfríður Þóra Egilsson, prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands
  • Rachel Teplicky, Business and Engagement Officer, Occupational Therapist at CanChild Centre for Childhood-Onset Disability Research, McMaster University
  • Peter Rosenbaum, Professor of Paediatrics, McMaster University, Co-Founder, CanChild Centre for Childhood-Onset Disability Research

Snæfríður Þóra fjallar um þátttöku fatlaðra barna og ungmenna, hvað felst í þátttökuhugtakinu og hvernig samspil barns og umhverfis mótar möguleika til þátttöku. Hún dregur fram niðurstöður íslenskra og alþjóðlegra rannsókna og beinir sjónum að því sem ungt fatlað fólk telur sjálft skipta mestu máli fyrir góða framtíð.

Rachel Teplicky fjallar um hagnýta innleiðingu F-orðanna (Færni – Fjölskylda – Form – Félagar -Fjör – Framtíð) og hvernig þau geta umbreytt þjónustu með því að færa áherslu frá takmörkunum yfir í styrkleika, færni og þátttöku barna. Peter Rosenbaum tekur þátt í erindi Rachel í gegnum netið og setur umræðuna í alþjóðlegt samhengi.

 

Veitingar og afmælisdrykkur

Boðið verður upp á veitingar í kaffihléum og hádegisverðarhlaðborð á fimmtudeginum.

Í lok ráðstefnudags á fimmtudeginum verður boðið upp á drykk til að fagna:

  • 40 ára afmæli Ráðgjafar- og greiningarstöðvar
  • 70 ára afmæli Gló Æfingastöðvar

 

Skráningargjöld

Snemmskráning (10. mars – 15. apríl)
Fagaðilar: 37.000 kr.
Aðstandendur: 32.000 kr.

Síðskráning (16. apríl – 29. apríl)
Fagaðilar: 42.000 kr.
Aðstandendur: 37.000 kr.

Streymi
Einstaklingsmiði: 22.000 kr.

 

Með þekkingu, samvinnu og hugrekki getum við skapað samfélag þar sem tækifæri til þátttöku eru ekki undantekning heldur raunveruleg staða.

 

Von er á góðri þátttöku og því er mikilvægt að tryggja sér sæti sem fyrst!

 

Hér getur þú nálgast ráðstefnuna á Facebook.

 

Ráðstefnugjald og greiðsluskilmálar
Nauðsynlegt er að ganga frá greiðslu með debet- eða kreditkorti við skráningu. Skráning er ekki gild nema gengið sé frá greiðslu í skrefi þrjú með debet- eða kreditkorti. Kvittun sem hægt er að nýta vegna endurgreiðslu frá stéttarfélögum berst þátttakanda með staðfestingarpósti skráningar.

Afskráning þarf að berast skriflega í síðasta lagi 29. apríl 2026 með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Við það fæst ráðstefnugjald endurgreitt að fráteknu skráningar- og umsýslugjaldi að upphæð kr. 3.000,-.

Hægt er að hafa samband við Ráðgjafar- og greiningarstöð í gegnum netfangið fraedsla@rgr.is ef þú lendir í vandræðum með skráninguna.

Heiti námskeiðs
Dagsetning
Dagar
Tími
Staðsetning
7. maí 2026 - 8. maí 2026
fim-fös
09:00-16:00 (fös 08:45-12:00)
Hilton Reykjavík Nordica