Dagsetning og tími:
8. nóvember 2023 kl. 09:00-16:00 (8 kennslustundir)
Staðsetning: Rauða kross salurinn í Hafnarfirði, Strandgötu 24.
Verð:
28.300 kr. fyrir fagfólk og 8.300 kr. fyrir foreldra/aðstandendur.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað foreldrum, aðstandendum og starfsfólki sem sinna umönnun, ráðgjöf þjálfun og kennslu ungmenna með einhverfu og önnur þroskafrávik frá 13 ára aldri. Námskeiðið hét áður Ungmenni með einhverfu og aðrar þroskaraskanir.
Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 40 manns.
Lýsing:
Fjallað verður um ódæmigert þroskaferli, styrkleika, áskoranir og hvernig það er að vera öðruvísi. Rætt verður um áhrifaþætti varðandi sjálfsmynd, líðan, samskipti og tengsl þeirra við geðheilsu svo sem kvíða og þunglyndi. Ennfremur verður farið yfir samspil þroska og færni í daglegu lífi og hvernig skipulag og aðlögun umhverfis getur stuðlað að aukinni þátttöku og lífsgæðum ungmenna í þessum hópi. Farið verður yfir hvort greining feli í sér létti eða sorg og hvaða þýðingu hún hefur fyrir viðkomandi einstakling, fjölskyldu hans og nærsamfélagið. Fjallað verður um viðurkennt verklag í þjónustu auk þess sem foreldri mun segja frá eigin reynslu. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum og umræðum.
Markmið:
Að þátttakendur:
- Efli þekkingu og skilning á þörfum ungmenna með ódæmigerðan taugaþroska
- Auki hæfni sína til að takast á við ýmsar áskoranir í daglegu lífi
- Geti miðlað þekkingu til fjölskyldu eða samstarfsfólks
- Tileinki sér jákvæð viðhorf og lausnamiðaða hugsun
Umsjón: Elín Konráðsdóttir, félagsráðgjafi
Skráningu á námskeiðið Öðruvísi taugaþroski - áskoranir unglingsáranna lýkur 2. nóvember 2023, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.