Tákn með tali - fjarkennsla (0325)

Kennt í fjarkennslu - ATH! Nauðsynlegt er að vera í mynd á námskeiðinu.

Dagsetning og tími: 25. mars 2025 frá klukkan 09:00-16:00. Samtals 7 klukkustundir.

Verð: Fagaðili: 25.900.- Aðstandandi: 12.950.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað þeim sem áhuga hafa á að kynna sér TMT tjáskiptaaðferðina og fjölbreytta notkun hennar. Sérstaklega á það við um starfsfólk leikskóla, grunnskóla og annara stofnana þar sem þörf er á skýru málumhverfi. Ástæður geta til dæmis verið seinkaður málþroski, fötlun eða fjölmenningarlegt málumhverfi.

Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 10.

Lýsing:
TMT er tjáskiptaaðferð sem er ætluð heyrandi fólki, bæði börnum og fullorðnum sem eiga við mál- og talörðugleika að stríða. Aðferðin hefur einnig nýst börnum vel sem eru með erlent móðurmál og þurfa að aðlagast nýju málumhverfi. Jafnframt hefur TMT verið notað í auknum mæli til almennrar málörvunar fyrir ung börn bæði hér á landi og erlendis. TMT byggist á því að tákn, látbragð, svipbrigði og bendingar eru notuð á ákveðinn hátt samhliða tali. Tilgangurinn er meðal annars að gera málumhverfið skýrara og auðvelda tjáningu. Bætt tjáning hefur jákvæð áhrif á hegðun og líðan og stuðlar að sterkari sjálfsmynd. Misjafnt er hvenær byrjað er að kenna tákn með tali en í mörgum tilvikum er það notað með börnum allt frá fæðingu.

Fjallað verður um hugmyndafræði TMT. Kennd verða tákn sem nýtast í daglegu starfi með notendum á öllum aldri. Kynntar verða hugmyndir og leiðir til að örva tjáskipti með TMT. Gerðar verða æfingar og verkefni. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, kennslu tákna, æfingum og verkefnum. Áhersla er á virkni þátttakenda á námskeiðinu og að þeir deili með sér hugmyndum og reynslu.

Markmið
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:

  • þekkja hugmyndafræðina sem liggur að baki TMT
  • hafa umtalsverðan táknafjölda á valdi sínu
  • geta notað TMT í starfi
  • geta verið sjálfstæðir í vinnubrögðum með TMT

 

Umsjón
Herdís Hersteinsdóttir og Inger J. Daníelsdóttir þroskaþjálfar.

Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar:

Skráningu á námskeiðið Tákn með tali lýkur 17. mars 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.

Heiti námskeiðs
Dagsetning
Dagar
Tími
Staðsetning
25. mar 2025
þri
09:00-16:00
Fjarkennsla