Skráning og þjálfun (0325)

Athugið að þetta námskeið er framhaldsnámskeið af námskeiðinu Snemmtæk atferlisíhlutun (atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik) og því einungis fyrir fólk sem hefur setið það námskeið.

Staðsetning: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Dalhraun 1b.

Dagsetning og tími: 20. mars 2025, klukkan 9:00-12:30. Samtals 3,5 klukkustundir.

Verð: 19.950 kr.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Ætlað starfsfólki sem starfa við atferlisíhlutun og kennslu með aðgreindum kennsluæfingum í leikskólum og grunnskólum.

Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 6 og hámarksfjöldi er 12.

Lýsing
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir sem notaðar eru í aðgreindum kennsluæfingum í atferlisíhlutun. Þátttakendur læra að nota villulaust nám í aðgreindum kennsluæfingum, skrá upplýsingar og taka saman skráningar. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum ásamt verklegum æfingum í að nota aðgreindar kennsluæfingar í vinnu með börnum með þroskafrávik.

Óskað er eftir því að þátttakendur komi með sýnar eigin tölvur og heyrnartól, hafi þau tök á því. Vinsamlegast látið vita af því ef þið hafið ekki tök á því.

Markmið

  • Að þátttakendur kunni að nota aðgreindar kennsluæfingar í vinnu með börnum með þroskafrávik
  • Að þátttakendur kunni að nota villulaust nám í aðgreindum kennsluæfingum
  • Að þátttakendur kunni að skrá og taka saman skráningar
  • Að þátttakendur geti tekið saman upplýsingar fyrir vinnufundi

 

Umsjón, skipulagning og kennsla:
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir atferlisfræðingur, Lilja Árnadóttir, atferlisfræðingur og Rakel Rós A. Snæbjörnsdóttir, atferlisfræðingur.

 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráningu á námskeiðið Kennum nýja færni lýkur 12. mars 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.