Einhverfurófið – grunnnámskeið (0225)

Staðsetning: Húsnæði Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 72. Fjarnámskeið á TEAMS vegna slæmrar veðurspár.

Dagsetning og tími: 6. febrúar 2025 frá klukkan 9:00 - 14:00. Samtals 5 klukkustundir.

Verð: Fagaðili: kr. 21.000.- Aðstandandi: kr. 10.500.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, íhlutun og kennslu barna á einhverfurófi.

Fjöldi þátttakenda:
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 15.

Lýsing námskeiðs:
Fjallað er um einhverfurófið, helstu einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, áhrif á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum og umræðum. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennsluleiðir og hagnýt ráð verða til dæmis ekki kynnt á þessu námskeiði.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:

  • Auki þekkingu sína á einhverfurófinu
  • Þekki hvað felst í greiningu á einhverfu
  • Auki skilning sinn á þörfum þessa hóps barna og fjölskyldna þeirra og hvað felst í góðri þjónustu
  • Þekki mikilvægi samstarfs fagfólks og foreldra

Umsjón:
Guðrún Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi og Svandís Ása Sigurjónsdóttir sálfræðingur.

Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar

Skráningu á námskeiðið Einhverfurófið - grunnnámskeið lýkur 29. janúar 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.

Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.

Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér

Heiti námskeiðs
Dagsetning
Dagar
Tími
Staðsetning
6. feb 2025
fim
09:00-14:00
Fjarkennsla