Staðsetning: Fjarnámskeið á TEAMS.
Dagsetning og tími: 19. febrúar frá 13:00 -15:00. Samtals 2 klukkustundir.
Verð: Fagaðili: kr. 7400.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er eingöngu ætlað fagfólki sem starfar í leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla. Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir deildarstjóra, stuðningsaðila, deildarstjóra stoðþjónustu, skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
Fjöldi þátttakenda
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þessu námskeiði er 8. Hámarksfjöldi er 30.
Lýsing
Námskeiðið er almenn fræðsla fyrir fagaðila um þá þjónustu sem Ráðgjafar- og greiningarstöð (RGR) býður þjónustuaðilum upp á frá því að frumgreining liggur fyrir og þar til að greiningarferli á Ráðgjafar- og greiningarstöð (RGR) er lokið.
Farið verður yfir hvað þarf til að barni sé vísað á RGR. Skoðaðar verða aðferðir sem hægt er að nýta í vinnu með barni á þessu tímabili. Farið er ítarlega í gegnum hvað greiningarferli á RGR felur í sér og hvaða gögn og upplýsingar þurfa að berast frá leik- og grunnskóla fyrir athugunarviku á RGR.
Markmið
- Að þátttakendur séu vel upplýstir um hvað greiningarferli á RGR felur í sér. Að þeir geti stutt sem best við barnið og foreldra þess.
- Að þátttakendur fái hagnýtar upplýsingar um hvernig vinna megi með barninu og þá þjónustu sem býðst.
Kennarar
Erna Magnúsdóttir, sálfræðingur
María Lovísa Breiðdal, sálfræðingur
Skráningarfrestur og greiðsluskilmálar:
Skráningu á námskeiðið Biðtíminn: Þjónusta frá frumgreiningu að athugunarferli á Ráðgjafar- og greiningarstöð lýkur 11. febrúar 2025, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss.Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu.
Hægt er að afskrá sig á námskeið skriflega áður en útgefinn skráningarfrestur þess er liðinn með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is. Í þeim tilfellum fæst námskeiðsgjald endurgreitt en innheimt er skráningar- og umsýslugjald að upphæð kr. 3.000,-. Möguleiki er á að láta greiðslu námskeiðs ganga upp í næsta námskeið.
Frekari upplýsingar um greiðsluskilmála má finna hér