Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik (0923)

Staðsetning: Rauða kross salurinn í Hafnarfirði, Strandgötu 24.

Dagsetning og tími: 6. og 7. september 2023, klukkan 9:00-16:00 báða daga, 16 kennslustundir.

Verð: Fagaðili: 44.300.- Aðstandandi: 12.700.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með frávik í þroska í leikskólum.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 40.

Lýsing
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og draga úr óæskilegri hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri. Einnig er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins og um daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og segja frá þátttöku sinni í heildstæðri atferlisíhlutun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.

Markmið
Að þátttakendur:

  • þekki undirstöðuþætti heildstæðrar atferlisíhlutunar
  • þekki leiðir til að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun barna með þroskafrávik
  • þekki til þeirrar reynslu af skipulagi og framkvæmd atferlisíhlutunar í leikskólum hér á landi.

Umsjón, skipulagning og kennsla: 
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir atferlisfræðingur og Katrín Sveina Björnsdóttir atferlisfræðingur,

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráningu á námskeiðið Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik (0923)  lýkur 2. september 2023, en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss. Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með debet- eða kreditkortagreiðslu. 

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega viku fyrir námskeiðsdag með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is og fær þá skráður þátttakandi fulla endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.